Hjálmar ólst upp í Hafnarfirði og á bænum Hlíð í Gnúpverjahreppi. Árin 1986 til 1997 bjó hann í Vestur-Berlín. Þar sá hann Múrinn falla og veit síðan þá að ekkert er ómögulegt. Römmustu virki óréttlætis geta fallið á svipstundu.

Hjálmar er með BA-próf í heimspeki og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og er MA í heimspeki, þýskum fræðum og bókmenntum frá Freie Universität Berlin. Hjálmar hefur starfað lengi við fjölmiðla, þar af 12 ár sem dagskrárgerðarmaður við RÚV. Þar var hann umsjónarmaður þáttanna Spegillinn og Krossgötur. Hann hefur skrifað og gefið út nokkrar bækur um íslenska listamenn. Stofnaði hann árið 2000 fræðibókaritröðina ATVIK og bókaútgáfuna OMDÚRMAN árið 2007, ásamt Geir Svanssyni og Irmu Erlingsdóttur. Hjálmar starfaði í mörg sumur sem leiðsögumaður á hálendi Íslands. Hefur hann stundað kennslu við Listaháskóla Íslands og við Endurmenntunarstofnun HÍ.

Kona Hjálmars heitir Ósk Vilhjálmsdóttir. Hún er myndlistarmaður, fjallageit og hlaupadrottning. Börnin heita Borghildur, Hulda Ragnhildur og Vilhjálmur Yngvi.

Hjálmar bauð sig fram fyrir Samfylkinguna fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2010. Hann er fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, stjórnarformaður Faxaflóahafna og varaformaður umhverfis og skipulagsráðs. Sumarið 2010 var hann kjörinn í umbótanefnd Samfylkingarinnar.